UM OKKUR
Við erum hópur sérfræðinga með áratuga reynslu og mikla ástríðu fyrir markaðssetningu á netinu. Við náum árangri með því að einblína á markmiðið: að nota bestu mögulegu aðferðir svo að viðskiptavinir okkar nái frábærum árangri. Við skilum vinnunni á réttum tíma og fórnum aldrei gæðum.
Saga fyrirtækisins nær aftur til ársins 1997. Við höfum getið okkur gott orð á meðal innlendra og erlendra fyrirtækja í gegnum árin og erum stolt af stóru tengslaneti. 2018 sameinuðumst The Engine og PiparTBWA og við það breikkaði þjónustuúrval sameinaðs fyrirtækis til muna. PiparTBWA þarf vart að kynna en fyrirtækið hefur unnið til fjölda verðlauna og hefur skipað sér sess sem ein fremsta auglýsingastofa landsins sem veitir alhliða þjónustu á sviði auglýsinga og markaðssetningar.
Starfsfólk